Jæja..biðst afsökunar á þessari leti í okkur.. Núna er sko nóg í fréttum!!
Byrjum á jólunum.. þegar ég loksins kláraði prófin þá voru víst komin jól! Við vorum þrjú saman heima hjá mömmu og pabba í gautavík, en þar var líka Andrés og Súddi. Við höfðum það rosa gott, borðuðum rjúpur sem voru auðvitað geggjaðar. Opnuðum svo pakkana í “rólegheitum”.. Þetta var doldið öðruvísi en í fyrra þegar hún var 4 mánaða. Kolbrún var vægast sagt spennt yfir pökkunum…reif utan af þeim á milljón og öskraði svo vá þegar innihaldið kom í ljós. Svo komu amma og afi í Lautarsmára í kaffi seinna um kvöldið og Kolbrún var í þvílíku stuði langt frameftir kvöldi. Svo um ellefuleytið þá fórum við heim, og vorum svo heppin að Loftur kom og gisti hjá okkur. Sigga Helga kom líka í heimsókn, hún var að koma úr vinnunni!
Kári átti svo afmæli á jóladag, eins og alltaf ;). Við fórum á Flúðir til ömmu og afa og vorum þarf fram á annann í jólum. Svo vorum við bara á flakki á milli Flúða og Reykjavíkur allann tímann, en Kolbrúnu fannst það sko ekki leiðinlegt! Svo ákváðum við að prófa eitthvað nýtt um áramótin og fórum í sumarbústað með Ellen og Atla vinafólki okkar og börnunum þeirra. Það var alveg geggjað og við erum sko búin að ákveða að gera það aftur.
Svo kom að því að fríið var búið, Kári fór að vinna og ég byrjaði aftur í skólanum.. Kári er líka á fullu að vinna í Framadögum, en þeir verða haldnir 20. febrúar nk í Háskólabíó, hvet alla til að mæta.
Í dag fórum við svo út á gönguskíði, það er búið að vera svo geðveikt veður seinustu daga en við höfum aldrei getað nýtt okkur það neitt. Þannig að í dag fórum við til ömmu og afa hans Kára á gönguskíðunum með Kolbrúnu í eftirdragi á snjóþotu. Amma á Flúðum kom líka og Daði kom í smá stund með Anítu með sér. Við ætlum svo að vera í Gautavík í dag og borða kjúlla, Kolbrún er í þessum töluðu orðum eitthvað að rífa sig við afa sinn, er frekar ósátt við að hann sé í baði og að hún fái ekki að koma með.. Hún er ekkert frek, nei nei…
Annars er Kolbrún að verða 18 mánaða í febrúar..jæks, þetta líður alltof fljótt. Hún er orðin rosa dugleg að tala, er farin að apa allt eftir okkur. Stundum getur reynst erfitt að skilja hana en þetta er samt allt að koma. Skemmtilegast finnst henni að leika hvað dýrin segja.. Kann að leika eftir apa, górilli, fíl og auðvitað kisu og voffa. Ég ætla að reyna að setja inn myndir á morgun, er búin að fylla minniskortið á myndavélinni þannig að það er nóg til að skoða!
Vona að það sé einhver sem er ennþá að kíkja hérna inn:)
Anna






